Dagana 3.-4. maí verða undanúrslit í BEST stærðfræðikeppninni. Keppnin er á landsvísu fyrir 9. bekk og 15 skólar komust í undanúrslitin af 49 sem tóku þátt. Það verðum við á meðal með öflugt lið og spennandi verður að fylgjast með undirbúningi. Tveir piltar og tvær stúlkur verða okkar fulltrúar en auk þess þarf allur bekkurinn að vinna að sameiginlegu verkefni sem lagt verður fram í keppninni.