Haldin verður sprengidagsskemmtun í Hrafnagilsskóla þriðjudaginn 21. febrúar 2012 frá kl. 13:30-16:00. Skólabílar keyra nemendur heim að skemmtun lokinni.
Sjoppan verður opin og nemendur í 9. bekk selja þar pítsur, sælgæti, svala og gos. Dæmi um verð í sjoppunni;
– pítsusneið 300 kr.
– gos 200 kr.
– svali 100 kr.
– súkkulaðistykki á bilinu 100-160 kr.
– lakkrísrúllur 80 kr.
– sleikipinnar 40-60 kr.
Hægt verður að fara til spákonu, í draugaherbergi og að sjálfsögðu verður hið ,,alræmda“ vopnaherbergi á sínum stað. Boðið verður upp á andlitsmálningu og eru allir nemendur hvattir til að mæta í öskudagsbúningum og leyfa hugmyndafluginu að njóta sín. Veittar verða viðurkenningar fyrir búninga sem skara framúr.
Haldin verður liðakeppni í söng og gaman væri að sjá sem flesta taka þátt í henni.
Að sjálfsögðu er foreldrum velkomið að koma og líta á dýrðina.
Frí verður í skólanum á öskudag og vetrarfrí dagana 23. og 24. febrúar. Nemendur mæta því næst í skólann mánudaginn 27. febrúar. Það skal tekið fram að engin skólavistun verður á sprengi- og öskudag og vetrarfrís dagana tvo.