Menningarhúsinu Miðgarði Föstudaginn 27. janúar 2012
Starfsmenn á vegum félagsmiðstöðvar:
- Óðinn Ásgeirsson (856-3600)
- Sigrún María Bjarnadóttir (864-4176)
- Þóra Víkingsdóttir (857-1919)
Staður:
Menningarhúsið Miðgarði Varmahlíð.
Tímaplan:
Kl. 17:00 Brottför frá Hrafnagilsskóla stundvíslega kl. 17:00
Kl. 18:30 Húsið opnar
kl. 19:00 Söngkeppnin hefst
kl. 20:30 Söngkeppni lýkur.
Kl. 21:00 Úrslit kynnt.
kl. 21:00 Ballið byrjar
kl. 23:00 Ballinu lýkur.
Veitingasala verður á staðnum frá kl. 16:00
Pizzur og gos. Kaupfélag Varmahlíðar er rétt hjá Miðgarði. Þar er hægt að kaupa heitan mat. Veitingasala fyrir keppendur verður í grænaherberginu.
Sund
Þeir gestir eða þátttakendur sem komnir verða fyrr geta farið í sund í Sundlaug Varmahlíðar sem er staðsett rétt við Miðgarð – Frítt í sund fyrir alla. Sundlaugin er opin frá kl. 16:00 til 18:30.
Reglur keppninnar.
Sungið á íslenzku og athugið að stuðst er við 3ja mínútna reglu Samfés keppninnar. Við sendum 5 atriði í aðalkeppnina.
Umgengni , hegðun
Höfum í heiðri helstu reglur sem gilda á Samfésviðburðum – áróður gegn tóbaki, áfengi og það allt. Þarf ekki að tíunda það nánar. Við förum eftir reglum Samfés um klæðaburð. Reglur um klæðaburð:
Reglur Samfés:
Ef klæðast á kjól eða pilsi sem nær EKKI niður fyrir hné skal klæðast lituðum sokkabuxum eða leggins sem ná niður á ökkla (s.s. hjólabuxur ekki í lagi).
Varast skal að klæðast of flegnum bolum eða kjólum.
Ekki er leyfilegt að vera með skyrtur alveg fráhnepptar né að vera ber að ofan.
Vanda skal val á skóm og beita skynseminni í þeim efnum.
Húsinu er lokað þegar keppnin hefst þannig að við biðjum alla að vera tímanlega eða að öðrum kosti láta vita ef tafir eru á ferðum manna. Það er ekki leyfilegt að fara út úr húsinu nema þá með sérstöku leyfi starfsmanns.
Orkudrykkir eru ekki leyfilegir á söngkeppninni eða ballinu.
Æfingaplanið (fyrir keppendur)
Tímar miðað við það að þeir sem koma lengst að séu aftast í planinu. Ath. Keppnisröð verður tilkynnt á æfingatíma á föstudaginn.
Sauðárkrókur kl. 15:50
Skagaströnd kl. 16:00
Blönduós kl. 16:10
Fjallabyggð kl. 16.20
Dalvík kl. 16.30
Þelamörk kl. 16.40
Hrafnagil kl. 16:50
Akureyri kl. 17:00
Akureyri kl. 17:10
Akureyri kl. 17:20
Akureyir kl. 17:30
Grenivík kl. 17:40
Hvammstangi kl. 17:50
Húsavík kl. 18:00
Þórhöfn kl. 18:10
Hvert atriði fær 10. mín í æfingu.