Aðalfundur Foreldrafélags Hrafnagilsskóla fyrir skólaárið 2011-2012 verður haldinn fimmtudagskvöldið 29. september næstkomandi kl. 20.30 í Hrafnagilsskóla. Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum mun Aníta Jónsdóttir kennari og námsráðgjafi flytja erindi um jákvæðan aga.
Við minnum á að foreldrar og forráðamenn allra barna í Hrafnagilsskóla eru sjálfkrafa félagar í Foreldrafélaginu og eiga því fullt erindi á þennan fund!! Í boða verða léttar veitingar.
Vonumst til að sjá sem flesta.
Stjórn Foreldrafélags Hrafnagilsskóla.