Sindri 2. b. og Járnbrá 1. b. fengu verðlaun

Ljóðasamkeppni Norðurorku fór fram í lok maí og var yrkisefnið vatn.

Um níuhundruð ljóð bárust frá nemendum fimmtán grunnskóla á starfssvæði Norðurorku.  Dómnefndin valdi þrjú ljóð í hverjum flokki til fyrstu, annarra og þriðju verðlauna en veitti auk þess auka verðlaun fyrir nokkur ljóð til viðbótar.

Í flokki 1. til 4. bekkjar hlaut Sindri Snær Stefánsson 2. bekk Hrafnagilsskóla 1. verðlaun fyrir ljóðið ,,Tárið" og Járnbrá Karítas Guðmundsdóttir, 1. bekk Hrafnagilsskóla fyrir ljóðið ,,Fallegt vatn".

Þau fá bestu hamingjuóskir og hér má lesa ljóðin þeirra.

Tárið
Glært tár rennur niður ána.
Er hún að gráta?
Ég stend og stari en
áin heldur áfram
og glansar í sólinni.
Ég fæ mér að drekka
og geng af stað.

Sindri Snær Stefánsson – 2. bekk Hrafnagilsskóla

Fallegt vatn
Mig langar að eiga heima í vatninu,
því vatnið er svo fallegt.
Mig langar að sjá vatnsálfa
og gera með þeim regndropa.
Mig langar að sjá regnskýin
og mig langar að eiga vatn alltaf.

Járnbrá Karítas Guðmundsdóttir – 1. bekk Hrafnagilsskóla