Á morgun stendur til að fara í UNICEF-hreyfinguna sem nemendur hafa verið að safna áheitum fyrir. Mikilvægt er að allir komi klæddir til útiveru því ekki er búist við miklum hlýindum á morgun. Við byrjum kl. 10 og verðum að til kl. 11:15. Mismunandi hreyfiþrautir verða í boði, til dæmis víðavangshlaup, þrautabraut, sund fyrir 4. bekk og eldri og fl.