Árshátíð yngsta stigs
Hátíðin verður haldin í Laugarborg þriðjudaginn 12. apríl frá klukkan 14:00—16:00. Árshátíðargestir munu kynnast himingeimnum og ýmis konar verum þaðan. Að loknum skemmtiatriðum stjórnar Elín Halldórsdóttir dansi.
Aðgangseyrir er 600 kr. fyrir nemendur á grunnskólaaldri en 1.100 kr. fyrir eldri. Frítt fyrir börn undir 6 ára aldri. Veitingar eru innifaldar í verði. Ágóði af miðasölu og sjoppu rennur í ferðasjóð nemenda.
Sjoppan verður opin og þar er hægt að kaupa gos, svala og sælgæti. Skólabílar keyra ekki að árshátíð lokinni.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Nemendur í 1.-4. bekk í Hrafnagilsskóla