Haldin verður sprengidagsskemmtun þriðjudaginn 8. mars frá kl. 14:00-16:00. Skólabílar keyra nemendur heim að skemmtun lokinni.
Sjoppan verður opin og nemendur í 9. bekk selja þar pítsur, sælgæti, svala og gos. Dæmi um verð í sjoppunni;
pítsusneið 250 kr.
svali 100 kr.
súkkulaðistykki á bilinu 100-160 kr.
lakkrísrúllur 70 kr.
sleikipinnar 40-60 kr.
Hægt verður að fara til spákonu, í draugaherbergi og að sjálfsögðu verður hið ,,alræmda“ vopnaherbergi á sínum stað. Boðið verður upp á andlitsmálningu og eru allir nemendur hvattir til að mæta í öskudagsbúningum og leyfa hugmyndafluginu að njóta sín. Veittar verða viðurkenningar fyrir búninga sem skara framúr.
Haldin verður liðakeppni í söng og gaman væri að sjá sem flesta taka þátt í henni.
Að sjálfsögðu er foreldrum velkomið að koma og líta á dýrðina.
Frí verður í skólanum á öskudag og vetrarfrí dagana 10. og 11. mars. Nemendur mæta því næst í skólann mánudaginn 14. mars. Það skal tekið fram að engin skólavistun verður á sprengi- og öskudag og vetrarfrís dagana.