Rebekka og Soffía verða fulltrúar skólans í Upplestrarkeppninni
Miðvikudaginn 3. mars fór fram undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar hér í skólanum. Allir nemendur 7. bekkjar tóku þátt og hófst undirbúningur með formlegum hætti á Degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember 2010. Rebekka Garðarsdóttir og Soffía Stephensen urðu fyrir valinu að þessu sinni sem fulltrúar skólans í lokakeppninni sem fram fer á Grenivík 31. mars n.k. Dómnefnd skipuðu þau Sveinn Sigmundsson, Leifur Guðmundsson og Bryndís Þórhallsdóttir.
| Sigurvegararnir þær Soffía og Rebekka. |