Foreldrafélag Hrafnagilsskóla hlaut á dögum styrk að upphæð 200.000 kr. til að vinna að uppbyggingu og endurbótum í Aldísarlundi, útikennslusvæði Hrafnagilsskóla. Fulltrúar í stjórn foreldrafélagsins hafa fundað með stjórnendum Hrafnagilsskóla um verkefnið. Á vordögum verður boðað til fundar með áhugasömum foreldrum og starfsfólki í leikskólanum Krummakoti og Hrafnagilsskóla sem hugsanlega vilja taka þátt. Fundurinn verður auglýstur á heimasíðum skólanna og í fréttabréfi Eyjafjarðarsveitar.