Haldin verður sprengidagsskemmtun í Hrafnagilsskóla þriðjudaginn 9. febrúar 2016 frá kl. 13:20-16:00. Skólabílar keyra nemendur heim að skemmtun lokinni.
Sjoppan verður opin og nemendur í 9. bekk selja þar pítsur, sælgæti, svala og gos. Dæmi um verð í sjoppunni;
- pítsusneið 350 kr.
- gos 250 kr.
- svali 150 kr.
- súkkulaðistykki á bilinu 100-200 kr.
- lakkrísrúllur 100 kr.
- sleikipinnar 80 kr.
Hægt verður að fara til spákonu, í draugaherbergi og slökunarherbergi. Ljósmyndastöð verður á staðnum og boðið verður upp á andlitsmálningu og hárgreiðslu. Allir nemendur eru hvattir til að mæta í öskudagsbúningum og leyfa hugmyndafluginu að njóta sín.
Öll lið mega syngja á sviðinu í íþróttahúsinu og gaman væri að sjá sem flesta taka í viðburðinum.
Veittar verða viðurkenningar fyrir söng og búninga sem skara framúr.
Að sjálfsögðu er foreldrum velkomið að koma og líta á dýrðina.
Frí verður í skólanum á öskudag og vetrarfrí dagana 11. og 12. febrúar. Nemendur mæta því næst í skólann mánudaginn 15. febrúar. Það skal tekið fram að engin frístund verður á sprengi- og öskudag og vetrarfrís dagana tvo.