image (4)Í vetur buðum við í fyrsta skipti upp á valgrein á unglingastigi sem heitir Jóga og slökun. Þetta hefur mælst mjög vel fyrir og nemendur virðast njóta þess að prófa eitthvað nýtt, teygja á og enda á slökun.
Í dag var nuddtími og nemendur sýndu að í hópnum ríkir traust og samheldni. Einnig prófuðum við núvitundaræfingu og tai chi.