Í síðustu viku var haldin hin árlega hreystikeppni á miðstigi sem kallast þrekmeistarinn. Í þrekbrautinni var meðal annars sippað, gerðar armbeygjur, magaæfingar o.fl. Keppendur lögðu sig alla fram og var gaman að fylgjast með kappsemi miðstigsnemenda. Á samverustund voru síðan úrslitin kynnt og viðurkenningar afhentar fyrir 1., 2. og 3. sæti í hverjum bekk. Þrekmeistarar árið 2015 eru: Tinna Rún í 5. bekk, Mikael í 6. bekk og Birta Rún í 7. bekk.