Miðvikudaginn 11. mars fór fram íþróttakeppnin Skólahreysti í Íþróttahöllinni. Þar kepptu fulltrúar grunnskóla Akureyrar og nágrennis sín á milli. Fyrir hönd Hrafnagilsskóla kepptu Stefanía Sigurdís Jóhönnudóttir, Jón Smári Hansson, Kristján Karl Randversson og Gunnhildur Erla Þórisdóttir. Varamenn voru Valentína Björk Hauksdóttir og Davíð Almar Víðisson. Keppendur stóðu sig með strakri prýði og hreppti Hrafnagilsskóli annað sæti í þessum riðli.

 

IMG_3345 IMG_3368