Á dögunum efndi Lions hreyfingin til alþjóðlegrar ritgerðarsamkeppnis meðal blindra og sjónskertra ungmenna á aldrinum 11 til 13 ára. Sigrún Hekla Sigmundsdóttir nemandi í 7. bekk Hrafnagilsskóla fékk 1. verðlaun á Íslandi. Athöfnin fór fram á samverustund skólans miðvikudaginn 11. febrúar og komu fulltrúar Lions á Norðurlandi og afhentu verðlaunin. Við óskum Sigrúnu Heklu og fjölskyldu hennar hjartanlega til hamingju.