Óhætt er að segja að mikil ánægja hafi verið með árshátíð unglingastigs sem haldin var sl. föstudag. Nemendur í 8. – 10. bekk sýndu söngleikinn Með allt á hreinu. Kennarar leikstýrðu en nemendur sáu um söng, dans, búninga, leikmynd, förðun og tæknivinnu auk þess að leika.
Hér má sjá myndir frá söngleiknum sem Eyþór Ingi Jónsson tók og gaf. Kunnum við honum bestu þakkir fyrir.