Árshátíð unglingastigs verður haldin í Laugarborg föstudaginn 23. janúar n.k. Hún hefst kl. 20.00 og stendur til kl. 23.30. Ekið er heim að balli loknu.
Nemendur í 8., 9. og 10. bekk sýna stytta útgáfu af söngleiknum ,,Með allt á hreinu“ og kennarar á unglingastigi leikstýra. Auk þess að leika, syngja og dansa á sýningunni sjá nemendur um búninga, leikmynd, förðun og alla tæknivinnu.
Verð aðgöngumiða er 700 kr. fyrir nemendur á grunnskólaaldri og 1.400 kr. fyrir þá sem eldri eru. Veitingar á hlaðborði eru innifaldar í miðaverðinu.
Allir eru hjartanlega velkomnir.