Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur í Hrafnagilsskóla 14. nóvember. Á sýningu var foreldrum og gestum sýndur afrakstur þemadaga sem að þessu sinni var jafnrétti.
Fimmtudaginn 20. nóvember var danssýning í skólanum. Þar sýndu nemendur í 6. – 10. bekk dansa undir stjórn danskennara skólans Elínar Halldórsdóttur. Hér má sjá myndir frá danssýningunni.