Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur 15. nóvember þetta árið. Boðið var til dagskrár í íþróttasalnum klukkan 13:00 þar sem nemendur komu fram, lásu upp, dönsuðu og sungu. Sagt var frá vinnu á þemadögum þar sem unnið var út frá þemanu, heilbrigði og velferð. Hér má sjá myndir frá hátíðinni.