Föstudaginn 15. nóvember verður Dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur í Hrafnagilsskóla. Hátíðin hefst klukkan 13:00 í íþróttasal skólans. Nemendur skólans munu flytja atriði tengd þema dagsins sem að þessu sinni er heilbrigði og velferð. Einnig munu nemendur 7. bekkjar hefja stóru upplestrarkeppnina með upplestri á ljóðum Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi. Skólabílar aka heim að skemmtun lokinni kl. 14:45.
Óskilamunir verða til sýnis og foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að kíkja á þá.
Boltatímar falla niður þennan dag.
Nemendur í 10. bekk standa fyrir kaffisölu að lokinni dagskrá. Þar verður standandi hlaðborð og eru verð eftirfarandi.
- 0-5 ára ókeypis
- 1.-10. bekkur 600 kr.
- Þeir sem lokið hafa grunnskóla 1.200 kr.
- Allur ágóði rennur í ferðasjóð 10. bekkjarins.
Allir hjartanlega velkomnir.
Nemendur og starfsfólk Hrafnagilsskóla