Föstudaginn 10. maí var hreyfing til stuðnings UNICEF í Hrafnagilsskóla. Nemendur höfðu safnað áheitum fyrir tiltekna hreyfingu og unnu af kappi að því safna sem flestum límmiðum til merkis um hreyfingu sína. Veðrið lék við hópinn sem jók enn við ákafann í hreyfingunni. Nú eru nemendur að safna áheitunum saman og skila umslögunum með áheitafénu í skólann en þeir sem það vilja frekar geta líka lagt bent inn á reikning UNICEF á Íslandi, 701-26-102010, kt. 481203-2950. Ef lagt er inn á reikninginn biðjum við um að nafn skóla sé skráð svo hægt sé að reikna út heildarsöfnun nemenda.