Hrafnagilsskóli er enn á ný kominn í úrslit í BEST á Íslandi en það er stærðfræðikeppni ætluð 9. bekkjum á Íslandi. Sigurvegarinn keppir svo til úrslita við sigurskóla frá öðrum Norðurlöndum um norrænan sigur. Næsti áfangi í keppninni er að útbúa verkefni um þema keppninnar í ár en það er að þessu sinni tengt vatni. Þess má geta að í fyrra varð 9. bekkur Hrafnagilsskóla í 2. sæti í landskeppninni.