014Þegar snjó fór að leysa af gangstéttum í kringum skólann síðustu daga kom í ljós að tyggjókúlur lágu hér og þar.Okkur finnst þetta vera sóðalegt og ekki til prýði og jafnvel til skaða fyrir smáfuglana sem láta glepjast og halda að þarna liggi brauðmolar. Eftir að þetta var fært í tal á samverustund í gær komu nokkrir nemendur í 2. bekk og fengu hanska og plastpoka og týndu upp lausar klessur í frímínútunum og á myndinni sem fylgir hér með má sjá hluta afrakstursins.