Haldin verður sprengidagsskemmtun í Hrafnagilsskóla þriðjudaginn 12. febrúar 2013 frá kl. 13:30-16:00. Skólabílar keyra nemendur heim að skemmtun lokinni. Sjoppan verður opin og nemendur í 9. bekk selja þar pítsur, sælgæti, svala og gos. Dæmi um verð í sjoppunni;
- pítsusneið 300 kr.
- gos 250 kr.
- svali 120 kr.
- súkkulaðistykki á bilinu 100-210 kr.
- mentos 220 kr.
- sleikipinnar 50-80 kr.
Hægt verður að fara til spákonu, í draugaherbergi og að sjálfsögðu verður hið ,,alræmda“ vopnaherbergi á sínum stað. Boðið verður upp á andlitsmálningu og hárgreiðslu og eru allir nemendur hvattir til að mæta í öskudagsbúningum og leyfa hugmyndafluginu að njóta sín. Veittar verða viðurkenningar fyrir búninga sem skara framúr.
Haldin verður liðakeppni í söng og gaman væri að sjá sem flesta taka þátt í henni.
Að sjálfsögðu er foreldrum velkomið að koma og líta á dýrðina.
Frí verður í skólanum á öskudag og vetrarfrí dagana 14. og 15. febrúar. Nemendur mæta því næst í skólann mánudaginn 18. febrúar. Það skal tekið fram að engin skólavistun verður á sprengi- og öskudag og vetrarfrís dagana tvo.