Nemendur á unglingastigi ætla að selja smákökur í skólanum í fjáröflunarskyni á föstudaginn kemur. Í dag var hópur nemenda í 8. og 9. bekkur önnum kafinn við baksturinn þegar meðfylgjandi myndir voru teknar. Það sem safnast verður gefið til stúlknaheimilis í Bólivíu þar sem dveljast stúlkur sem ekki eiga athvarf hjá fjölskyldum sínum.