Árshátíð miðstigs Hrafnagilsskóla verður haldin í Laugarborg fimmtudaginn 22. mars n.k. og hefst kl. 20:00.
Nemendur í 5., 6. og 7. bekk sýna leikritið um Línu langsokk eftir barnabókarhöfundinn Astrid Lindgren.
Að loknum skemmtiatriðum verður boðið upp á hressingu og Elín Halldórsdóttir mun stjórna dansi eins og henni einni er lagið.
Skemmtuninni lýkur kl. 22:30. Aðgangseyrir er 600 kr. fyrir grunnskólanemendur, 1100 kr. fyrir eldri og frítt fyrir þá sem hafa ekki náð grunnskólaaldri. Allur ágóði rennur til nemenda, bæði til að greiða lyftugjöld í skíðaferð og einnig fá 7. bekkingar niðurgreiðslu þegar þeir fara í skólabúðirnar á Reykjum.
Veitingar eru innifaldar í verðinu og verður sjoppa á staðnum.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Nemendur 5.-7. bekkjar Hrafnagilsskóla