Árshátíð unglingastigs
Árshátíð unglingastigs verður haldin í Laugarborg föstudaginn 3. febrúar n.k. Hún hefst kl. 20.00 og stendur til kl. 23.30. Ekið er heim að balli loknu.
Nemendur í 8., 9. og 10. bekk sýna söngleikinn Stríðið um Trójuborg. Kennarar á unglingastigi leikstýra og Birgir Arason er tónlistarstjóri. Auk þess að leika, syngja og dansa á sýningunni sjá nemendur um búninga, leikmynd, förðun og alla tæknivinnu.
Verð aðgöngumiða er 600 kr. fyrir nemendur á grunnskólaaldri og 1.200 kr. fyrir þá sem eldri eru. Veitingar á hlaðborði eru innifaldar í miðaverðinu.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Nemendur á unglingastigi