Nemendur sem útskrifuðust úr 10. bekk í Hrafnagilsskóla s.l. vor ákváðu að gefa afganginn af ferðasjóði sínum til Hetjanna, félags langveikra barna á Norðurlandi. Upphæðin, kr. 274.526, var lögð inn á reikning félagsins fyrir nokkrum dögum. Hópurinn var öflugur í fjáröfluninni og þau gátu gefið þessa upphæð þrátt fyrir að hafa farið í skemmtilegt skólaferðalag á vordögum.
Meðfylgjandi er hópmynd af krökkunum, tekin í skólaferðalaginu í vor. Þarna voru þau að fara í litbolta ásamt tveimur kennurum.