Einar_Áskell_030309 (14)Miðvikudaginn 2. nóvember fá nemendur í 1. og 2. bekk að fara með leikskólabörnunum og sjá leikbrúðusýninguna Gilitrutt í flutningi Brúðuheima. Þau eiga von góðri skemmtun því leikbrúðumeistarinn Bernd er mjög fundvís á skemmtilegar útfærslur og einstakur hagleiksmaður þegar kemur að því að skapa brúðurnar og glæða þær lífi. Meðfylgjandi er mynd síðan hann kom hingað með leikritið um Einar Áskel fyrir tveimur árum.