Ráðgert er að allir nemendur fari í gönguferð á morgun. Yngsta stig gengur upp brekkurnar ofan við skólann. Mið- og unglingastig geta valið um að ganga 17 km hring á flatanum austan Eyjafjarðarár eða ganga á Uppsalahnjúk frá Öngulstöðum. Allir þurfa að vera klæddir til göngu og hafa með sér nesti. Þeir sem ganga á flatanum og nemendur yngsta stigs verða komnir nógu snemma til að borða hádegisverð í mötuneyti en fjallagarpar fá hádegisnesti með sér úr mötuneyti.

Að lokinni göngu geta nemendur miðstigs og unglingastig fengið að fara í sundlaugina og þurfa þá að hafa með sér sundföt en yngri nemendur verða í leikjum á skólalóð með kennurum.