clip_image002Árshátíð miðstigs Hrafnagilsskóla verður haldin í Laugarborg fimmtudaginn 24. mars n.k. og hefst kl. 20:00.

Nemendur í 5., 6. og 7. bekk sýna leikritið Það eru engin tígrisdýr í Afríku sem samið var sérstaklega fyrir þessa hátíð.

Að loknum skemmtiatriðum verður boðið upp á hressingu og Elín Halldórsdóttir mun stjórna dansi eins og henni einni er lagið.

Skemmtuninni lýkur kl. 22:30. Aðgangseyrir er 600 kr. fyrir grunnskólanemendur, 1.100 kr. fyrir eldri og frítt fyrir þá sem hafa ekki náð grunnskólaaldri. Allur ágóði rennur til nemenda, bæði til að greiða lyftugjöld í skíðaferð og einnig fá 7. bekkingar niðurgreiðslu þegar þeir fara í skólabúðirnar á Reykjum.

Veitingar eru innifaldar í verðinu og sjoppa verður á staðnum.

Allir eru hjartanlega velkomnir.

Nemendur 5.-7. bekkjar Hrafnagilsskóla