Dagana 3. og 4. febrúar var hefðbundið skólastarf brotið upp í Hrafnagilsskóla í tilefni af foreldrasamtaladögum. Fyrirkomulagið var með þeim hætti að nemendahópnum var skipt í tvennt. Helmingur nemenda mætti í skólann til að taka þátt í stöðvavinnu á meðan hinn helmingurinn mætti í foreldrasamtöl. Með þessu móti gefst rýmri tími fyrir samtölin sjálf og skemmtilegt uppbrot skapast í skólastarfinu.

Dagskráin var fjölbreytt og gátu nemendur valið sér viðfangsefni og fært sig á milli svæða. Í boði var að spreyta sig á bakstri í heimilisfræðistofu eða föndri í myndmenntastofu auk þess sem hægt var að fara í sund. Fyrir þá sem vildu rólegheit var boðið upp á slökun í Hyldýpinu eða spil og lestur á bókasafni.
Í íþróttasalnum unnu nemendur saman að skemmtilegu verkefni við að reisa kúlubraut úr ýmiskonar efnivið. Þar reyndi á samvinnu og útsjónarsemi við að hanna brautirnar þannig að kúlurnar skiluðu sér klakklaust í mark og vakti það mikla lukku þegar vel tókst til.