Þótt nokkuð sé um liðið frá árshátíð unglingastigs er ekki úr vegi að rifja upp þessa skemmtilegu stund en árhátíðin, sem fram fór föstudaginn 23. janúar, heppnaðist með eindæmum vel.

Nemendur í 8.–10. bekk stigu á stokk í Laugarborg og sýndu stytta útgáfu af söngleiknum Grease. Mikill hugur var í nemendum en unglingarnir sáu ekki aðeins um leik, söng og dans, heldur báru þau hitann og þungann af allri umgjörð, allt frá leikmynd og búningum yfir í tæknimál og fl.

Leikstjórn var í höndum Vilborgar Birnu Þorsteinsdóttur og Ágústs Þórs Brynjarssonar. Ágúst, sem margir þekkja úr undankeppni Söngvakeppninnar í fyrra, miðlaði af reynslu sinni og náði, ásamt Vilborgu, að kalla fram það besta í nemendum.

Að sýningu lokinni færðist fjörið yfir í nýjan fjölnotasal skólans sem tengir saman leikskólann Krummakot og Hrafnagilsskóla. Þessi nýja aðstaða sannaði gildi sitt þetta kvöld og skapaði frábæra umgjörð utan um ballið þar sem nemendur skemmtu sér konunglega fram eftir kvöldi.