Árshátíð unglingastigs verður haldin í Laugarborg föstudaginn 23. janúar n.k. Hún hefst kl. 19:30 með leiksýningu og endar á balli í fjölnotasalnum milli leik- og grunnskóla kl. 23:00.
Skólabílar aka heim að balli loknu.
Nemendur í 8., 9. og 10. bekk sýna stytta útgáfu af söngleiknum ,,Grease” og Ágúst Þór Brynjarsson ásamt kennurum á unglingastigi leikstýra. Auk þess að leika, syngja og dansa í sýningunni sjá nemendur um búninga, förðun, leikmynd, leikskrá og alla tæknivinnu.
Einnig verður boðið upp á tónlistaratriði.
Aðgangseyrir er 2.000 kr. fyrir 16 ára og eldri, 500 kr. fyrir börn á grunnskólaaldri (aðra en nemendur unglingastigs) og frítt er fyrir þá sem yngri eru. Veitingar á hlaðborði eru innifaldar í miðaverðinu og það verður opin sjoppa.
Ágóðinn rennur allur til nemenda, bæði í ferðasjóð 10. bekkjar og til að greiða lyftugjöld í skíðaferð og fleira fyrir nemendur unglingastigs.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Nemendur á unglingastigi

