Það er ánægjulegt að segja frá því að í gær voru veittir styrkir úr Sprotasjóði leik-, grunn- og framhaldsskóla en samtals fengu 30 skólaþróunarverkefni styrki fyrir skólaárið 2025-2026.
Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik-, grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga. Áherslusvið sjóðsins árið 2025 voru:
- Leikurinn sem leið til náms
- Gervigreind
- Grunnþáttur menntunar – Læsi
Hrafnagilsskóli í samstarfi við fjóra skóla á Norðurlandi eystra hlaut veglegan styrk til verkefnisins Bókmenntahátíð barnanna. Rithöfundarnir Þórunn Rakel Gylfadóttir og Berglind Erna Tryggvadóttir leiða verkefnið og munu leiðbeina nemendum og kennurum í skapandi skrifum og bókagerð næsta vetur. Verkefninu lýkur með Bókmenntahátíð barnanna sem fer fram í Hrafnagilsskóla í desember 2025.
Þeir skólar sem taka þátt í verkefninu með Hrafnagilsskóla eru Grenivíkurskóli, Valsárskóli, Stórutjarnaskóli og Reykjahlíðarskóli.
Umsýsla sjóðsins er hjá Rannís. Nánari upplýsingar má finna á vef Stjórnarráðs Íslands.