Kæru foreldrar/forráðamenn.

Eins og þið hafið eflaust heyrt í almennri umræðu um skólamál þá eiga allir grunnskólar á Íslandi að leggja fyrir stöðu- og framvindupróf sem kallast Matsferill. Matsferill er nýtt námsmatskerfi sem dregur upp heildstæða mynd af námslegri stöðu og framförum nemenda.

Stöðu- og framvinduprófin meta lesskilning og stærðfræði og verða þau lögð fyrir á tímabilinu 2. – 27. mars 2026. Hver skóli ákveður hvenær í mars nemendur fara í próf og þau krefjast ekki sérstaks undirbúnings. Við leggjum þó áherslu á að nemendur leggi sig fram og geri sitt besta. Einnig er gott ef foreldrar/forráðamenn ræddu við börnin sín um þessi próf svo þeim líði sem best í prófinu og virði mikilvægi þeirra en mikilvægt er að niðurstöður úr prófunum verði réttmætar.

Í Hrafnagilsskóla byrjum við að leggja prófin fyrir strax í næstu viku. Umsjónarkennarar munu upplýsa ykkur um hvenær nemendur fara í prófin. Allir árgangar í 4.- 10. bekk fara í stöðu- og framvinduprófin þó svo þau séu aðeins skyldubundin í 4., 6., og 9. bekk.

Gert er ráð fyrir að allir nemendur sem fylgja árgangi í námi taki prófin. Ef einhverjir nemendur hafa ekki forsendur til að taka prófin þá verður haft samband við forsjáraðila og sótt um undanþágu frá prófatöku. Undanþágubeiðni verður alltaf gerð í samvinnu við forsjáraðila.

Hér má finna almennar og nánari upplýsingar um stöðu- og framvinduprófin og á slóð Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, er að finna nánar upplýsingar um prófin og hægt er að skoða sýnipróf á slóðinni: synisprof.mms.is