Hrafnagilsskóli er grunnskóli í Hrafnagilshverfi og eru um 190 nemendur í skólanum. Skólasýn Hrafnagilsskóla byggir á skilningi, fagmennsku og dyggðum. Agastefna skólans er Jákvæður agi og sérstaða hans er m.a. umhverfismennt, öflug list- og verkgreinakennsla ásamt nýtingu tækni til náms. Heimasíða Hrafnagilsskóla er www.krummi.is.

Við óskum eftir að ráða í eftirfarandi stöður frá og með 1. ágúst 2026.

Deildarstjóri stoðþjónustu

Leitað er eftir fagaðila í 100% starf deildarstjóra stoðþjónustu við Hrafnagilsskóla. Viðkomandi þarf að hafa leiðtogahæfni og vera tilbúinn til að leiða stoðþjónustu við skólann.
Deildarstjóri stoðþjónustu starfar á sviði fræðslu- og velferðarmála Eyjafjarðarsveitar. Hann ber ábyrgð á skipulagningu og hefur yfirsýn yfir stoðþjónustu Hrafnagilsskóla. Deildarstjóri starfar jafnframt með stoðteymi leikskólans Krummakots og tryggir samstarf og samvinnu stoðþjónustu á milli skólanna. Deildarstjóri er jafnframt innleiðingarstjóri farsældar barna í Eyjafjarðarsveit.

Helstu verkefni:

  • Ber ábyrgð á skipulagningu, framkvæmd og endurmati stoðþjónustu.
  • Sinnir ráðgjöf til starfsfólks og foreldra/forráðamanna.
  • Metur þarfir barna og fylgir eftir stuðnings- og einstaklingsáætlunum.
  • Sinnir kennslu/þjálfun í samræmi við menntun og sérsvið þegar við á.
  • Situr teymisfundi nemenda þegar við á.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólanám í kennarafræðum, iðjuþjálfun eða þroskaþjálfun og starfsleyfi sem kennari, þroskaþjálfi eða iðjuþjálfi.
  • Viðbótarmenntun á sviði sérkennslufræða, farsældar eða önnur viðbótarmenntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Reynsla af skipulagningu og undirbúningi náms og kennslu eða þjálfunar.
  • Færni til þess að leggja mat á og greina framvindu náms/þjálfunar.
  • Leiðtogahæfni.
  • Farsæl reynsla af teymissamstarfi auk skipulagsfærni, sveigjanleika og víðsýni.
  • Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og metnaður til árangurs.
  • Góð íslenskukunnátta og geta til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Hæfni til að tileinka sér tækni og nýjungar.

Umsjónarkennari á yngsta stigi

Leitað er eftir umsjónarkennara í 100% starf. Umsjónarkennarar á yngsta stigi eru faglegir leiðtogar og sjálfstæðir í vinnubrögðum en vinna jafnframt í teymi og í nánu samstarfi við aðra kennara og stoðteymi skólans.

Kennari við Skóladeild Bjargeyjar

Leitað er eftir kennara í 70-100% starf við Skóladeild Bjargeyjar. Skóladeild Bjargeyjar tekur á móti nemendum frá meðferðarheimilinu Bjargey og starfar í nánu samstarfi með starfsfólki þar og kennurum og starfsfólki Hrafnagilsskóla. Kennarinn starfar í tveggja manna teymi og þarf að geta sýnt fram á sjálfstæði, sveigjanleika og getu til þess að einstaklingsmiða nám og nálgun.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
  • Þekking á fjölbreyttum kennsluháttum.
  • Frumkvæði, skipulagsfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hæfni til að skipuleggja og undirbúa nám og kennslu.
  • Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og metnaður til árangurs.
  • Góð íslenskukunnátta og geta til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Hæfni til að tileinka sér tækni og nýjungar.

Laun kennara eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.

Skólaliði

Skólaliði í 75% starf en getur einnig starfað í frístund óski viðkomandi eftir 100% starfi.
Leitað er eftir starfsfólki sem:

  • Sýnir metnað í starfi.
  • Er fært og lipurt í samskiptum.
  • Sýnir sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Getur leyst mál í samvinnu við starfsfólk, nemendur og foreldra.

Upplýsingar veita skólastjórnendur; Ólöf Ása Benediktsdóttir og Björk Sigurðardóttir í síma 464-8100. Sótt er um störfin með því að senda umsókn, ferilskrá og greinagerð á netföngin; asa@krummi.is eða bjork@krummi.is.

Í öllum störfum við Hrafnagilsskóla er gerð krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Umsóknarfrestur er til og með 18. mars 2026.