Frétt frá félagsmiðstöðinni Hyldýpi:
Félagsmiðstöðin Hyldýpi hélt Valentínusarball fyrir nemendur miðstigs Hrafnagilsskóla miðvikudaginn 11. febrúar. Ballið var haldið í nýjum samkomusal skólanna sem hentar mjög vel til svona viðburða.
Félagsmiðstöðvarráð Hyldýpis sá um undirbúning og framkvæmd í samvinnu við umsjónarmann félagsmiðstöðvarinnar og er óhætt að segja að vel hafi tekist til. Krakkarnir voru ánægðir með ballið og skemmtu sér vel.

