Nemendur í 7. bekk fengu í dag afhent hvatningarverðlaun stuttmyndakeppninnar Sexunnar. Sexan er stuttmyndakeppni sem tekur á stafrænu ofbeldi og er haldin á landsvísu. Það eru Ríkislögreglustjóri, Samband íslenskra sveitarfélaga, RÚV, fjölmiðlanefnd, Jafnréttisstofa, Reykjavíkurborg, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og Barna- og fjölskyldustofa sem standa að keppninni. Það var kvikmyndagerðarfólkið Anný Henríetta Knútsdóttir, Halldóra Brá Hákonardóttir, Birgit Elva Henriksdóttir, Stefán Geir Aronsson, Einar Hjalti Steingrímsson og Anežka Zavadilová sem áttu eina af verðlaunamyndunum.
í umsögn dómnefndar segir; „Það er til fyrirmyndar að sjá nemanda af erlendum uppruna í burðarhlutverki og sjá alla leikarana njóta sín í stuttmyndinni. Sagan er vel mótuð og er sett fram á skýran hátt og það er ljóst að nemendur í Hrafnagilsskóla vinna virkilega vel saman og skilja viðfangsefnið vel. Hrafnagilsskóli á einnig sérstakt hrós skilið fyrir að sýna að hægt sé að leita til kennara eða einhvers fullorðins þegar um stafrænt ofbeldi er að ræða„.
Fulltrúar samfélagslögreglunnar á Akureyri komu og veittu viðurkenninguna auk þess að gefa sér góðan tíma til að svara fjölbreyttum spurningum nemenda.
Hægt er að sjá myndina hér: