Hrafnagilsskóli tók á móti fulltrúum frá Sri Chinmoy Oneness-Home Peace Run í dag í sérstakri heimsókn sem snerist um frið og samstöðu. Allir nemendur skólans tóku þátt í viðburðinum með einum eða öðrum hætti.

Sri Chinmoy Oneness-Home Peace Run er alþjóðlegt boðhlaup sem stofnað var árið 1987 af andlegum leiðtoga Sri Chinmoy. Markmið hlaupsins er að stuðla að því að heimurinn verði friðsamlegri með því að bera fram skilaboðin „Peace begins with me“ – að friður byrji hjá hverjum og einum. Friðarhlaupið hefur ferðast til yfir 140 landa og heimsótt óteljandi borgir og samfélög. þar á meðal fjölmarga skóla til að gefa börnum tækifæri til þátttöku.

Dagurinn hófst á gróðursetningu friðartrés á skólalóðinni eftir að friðarkyndillinn var kominn á svæði. Friðartréð var vandlega valið af Hrafnhildi okkar sem einnig gerði allt tilbúið til gróðursetningar.

Nemendur yngsta stigs hlupu síðan með hlaupurum Friðarhlaupsins einn hring á íþróttavellinum og í kjölfarið fengu nemendur á mið- og unglingastigi fræðslu um friðarmál á bókasafninu og tóku þátt í umræðum .

Viðburðinum lauk svo með hlaupahring þar sem hlauparar og nemendur hlupu saman að Jólagarðinum.