Lokadagur nemenda þetta skólaárið er mánudagurinn 2. júní og þann dag keyra skólabílar heim kl. 13:00. Frístund er opin fyrir þá sem þar eru skráðir og er það síðasti opnunardagur þessa skólaárs.

Skólaslitin fara fram í íþróttahúsinu þriðjudaginn 3. júní kl. 18:00. Fólk er beðið að huga að því hvort skólabækur eða bókasafnsbækur hafi gleymst heima og koma þeim til skila. Einnig er hægt að skila inn Unicef áheitum.

Óskilamunir verða til sýnis og eru allir hvattir til að kíkja á þá.

Skólasetning verður síðan föstudaginn 22. ágúst kl. 13:00.

 

Skólastjórnendur