Fyrrum nemendur Hrafnagilsskóla, útskriftarárgangur 1995, komu í heimsókn í skólann í dag. Tilefnið var 30 ára útskriftarafmæli þeirra.

Ólöf Ása skólastjóri veitti þeim leiðsögn um skólann. Margar minningar voru rifjaðar upp bæði skemmtilegar stundir í kennslustofum og ýmis prakkarastrik og laumureykingar sem nemendur létu sér detta í hug á sínum tíma.

Heimsóknin var ánægjuleg fyrir alla aðila. Við þökkum hópnum kærlega fyrir heimsóknina og óskum þeim velfarnaðar um ókomin ár.