Hrafnagilsskóli er grunnskóli í dreifbýli um 12 km. fyrir innan Akureyri og eru um 180 nemendur í skólanum. Hrafnagilsskóli hefur hefur sýn sem byggir á skilningi, fagmennsku og dyggðum. Agastefna skólans er Jákvæður agi og meðal einkenna skólans er umhverfismennt, öflug list- og verkgreinakennsla ásamt nýtingu tækni til náms. Heimasíða Hrafnagilsskóla er www.krummi.is.
Við óskum eftir að ráða í eftirfarandi stöður frá og með 1. ágúst 2025.
Kennari í heimilisfræði
Kennari í 80% starf í heimilisfræðikennslu. Leitað er eftir kennara sem er faglegur og sjálfstæður í vinnubrögðum, kveikir áhuga nemenda og sýnir góðvild og festu.
Afleysingastaða – íþróttakennari í hlutastarf
Íþróttakennari í 60% starf. Möguleiki er á hærra starfshlutfalli með því að bæta við kennslu í öðrum námsgreinum.
Leitað er eftir kennurum sem:
- Sýna metnað í starfi.
- Vinna í góðri samvinnu við starfsfólk, nemendur og foreldra.
- Eru færir og liprir í samskiptum.
- Eru skapandi og sjálfstæðir.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
- Lagar kennslu- og starfshætti markvisst að þörfum nemenda.
- Sýnir metnað fyrir hönd nemenda.
- Vinnur í samvinnu við kennara og annað fagfólk.
- Sýnir árangur í starfi.
- Sýnir hæfni í mannlegum samskiptum.
- Sýnir frumkvæði, skipulagsfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Hefur gott orðspor og krafa er gerð um að framkoma og athafnir á vinnustað samrýmist starfinu.
Laun kennara eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.
Starfsfólk í frístund
Starfsfólk í frístund í hlutastarf. Vinnutími er milli klukkan 14:00 og 16:00 alla virka daga og einhverja daga frá klukkan 12:00. Starfsfólk starfar með forstöðumanni frístundar og er í góðu samstarfi við foreldra og starfsfólk skólans.
Leitað er eftir starfsfólki sem:
- Hefur reynslu af starfi með börnum.
- Sýnir metnað í starfi.
- Er fært og lipurt í samskiptum.
- Sýnir sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Getur leyst mál í samvinnu við starfsfólk, nemendur og foreldra.
- Hefur gott orðspor og gerð er krafa um að framkoma og athafnir á vinnustað samrýmist starfinu.
Skólaliði
Skólaliði í 75% starf en getur einnig starfað í frístund óski viðkomandi eftir 100% starfi.
Leitað er eftir starfsfólki sem:
- Sýnir metnað í starfi.
- Er fært og lipurt í samskiptum.
- Sýnir sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Getur leyst mál í samvinnu við starfsfólk, nemendur og foreldra.
Upplýsingar veita skólastjórnendur; Ólöf Ása Benediktsdóttir og Björk Sigurðardóttir í síma 464-8100. Sótt er um störfin með því að senda umsókn, ferilskrá og greinagerð á netföngin; asa@krummi.is eða bjork@krummi.is.
Umsóknarfrestur er til og með 25. apríl 2025.