Senn lýkur danskennslu hjá nemendum í 1.-4. bekk í Hrafnagilsskóla og elsta árgangi í Krummakoti. Af því tilefni verður danssýning í íþróttahúsi skólans fimmtudaginn 3. apríl kl. 13:10. Þar sýna nemendur hvað þeir hafa lært undanfarnar vikur hjá Elínu Halldórsdóttur danskennara.
Öll eru hjartanlega velkomin.