Hrafnagilsskóli settur í 55. sinn

Hrafnagilsskóli var settur fyrir skólaárið 2026–2027 og hefja 197 nemendur nám við skólann í vetur. Ólöf Ása Benediktsdóttir skólastjóri bauð nemendur, foreldra og starfsfólk velkomna við upphaf 55. starfsárs skólans. Í ræðu sinni dró hún fram mikilvægi mannlegra tengsla í skólasamfélaginu ásamt því að undirstrika gildi stundvísi, ábyrgðar og góðrar umgengni.

Verulegar breytingar hafa verið gerðar á húsnæði og lóð skólans undanfarið. Verið er að ljúka framkvæmdum á efri hæðinni þar sem unglingastig, tónmennt, textílstofa og skólabókasafn fá bætta aðstöðu. Stoðþjónusta skólans hefur flutt í nýtt rými sem hlotið hefur nafnið Laufið, og nýi salurinn Ásinn verður nýttur fyrir samverustundir, söngsali og samstarf við leikskólann Krummakot. Á skólalóðinni er sömuleiðis unnið að uppsetningu nýrra leiktækja, þar á meðal aparólu og rennibrautum þar sem víkingaskipið stóð áður.

Nokkrar breytingar verða á starfsliði og skipulagi í vetur. Þorbjörg Otta Jónasdóttir tekur við nýju starfi deildarstjóra yfir þverfaglegu teymi sérkennara, þroskaþjálfa og iðjuþjálfa í stoðþjónustu Skólans. Þá taka nýir kennarar, Bjarni Karlsson og Silja Garðarsdóttir, við tónmenntakennslu og munu stýra kór- og söngsalastarfi.

Kennsla hefst stundvíslega klukkan 8:15 í fyrramálið og mæta nemendur í 1. bekk beint í sína stofur. Foreldrar eru hvattir til að kynna sér akstursáætlun skólabíla á krummi.is og tilkynna frávik eða veikindi milliliðalaust. Tónlistarkennsla hjá Tónlistarskóla Eyjafjarðar og íþróttastarf Ungmennafélagsins Samherja hefjast sömuleiðis á næstu dögum.

Nýir kennarar, nýráðningar og breyttar stöður

  • Aldís Lilja Sigurðardóttir: Heimilisfræðikennari

  • Bjarni Karlsson: Tónmenntakennari

  • Halldóra Magnúsdóttir: Stoðkennari á yngsta stigi

  • Jóhanna Dögg Stefánsdóttir: Bókasafnskennari, upplýsinga- og tæknikennsla

  • Lydía Rós Unnsteinsdóttir: Íþrótta- og sundkennari

  • Sigrún Magnúsdóttir: Umsjónarkennari á yngsta stigi

  • Tinna Lóa Ómarsdóttir: Kennari á miðstigi

  • Tinna Unnarsdóttir: Umsjónarkennari í skóladeild Bjargeyjar

  • Þorbjörg Otta Jónasdóttir (Hobba): Deildarstjóri stoðþjónustu

  • Aðrir nýir starfsmenn: Arnrún Hildur Hrólfsdóttir og Bjarney Guðbjörnsdóttir (skólaliðar), Rebekka Rut Kristinsdóttir og Jóna Björnsdóttir Jensen (stuðningsfulltrúar á mið- og unglingastigi).

Umsjónarkennarar skólaárið 2026–2027

  • 1. bekkur: Ástrós Guðmundsdóttir

  • 2. bekkur: Hjördís Óladóttir

  • 3. bekkur: Sigrún Magnúsdóttir

  • 4. bekkur: Kristín Sigurðardóttir

  • 5. bekkur: Hulda Björk Snæbjarnardóttir

  • 6. bekkur: Guðný Jóhannesdóttir

  • 7. bekkur: Lísbet Patrisía Gísladóttir og Rakel Sigmarsdóttir

  • 8. bekkur: Páll Þorgeir Pálsson

  • 9. bekkur: Óðinn Ásgeirsson

  • 10. bekkur: Vilborg Birna Þorsteinsdóttir

  • Skóladeild Bjargeyjar: Tinna Unnarsdóttir