Skólaslit Hrafnagilsskóla fara fram í íþróttahúsinu fimmtudaginn 1. júní kl. 20:00. Fólk er beðið að huga að því hvort skólabækur eða bókasafnsbækur hafi gleymst heima og koma þeim til skila. Einnig eru þeir sem eiga eftir og ætla að skila UNICEF-áheitum hvattir til að skila þeim til ritara. Óskilamunir verða til sýnis og eru allir hvattir til að kíkja á þá.

Skólastjóri