Haldin verður sprengidagsskemmtun í Hrafnagilsskóla þriðjudaginn 28. febrúar 2017 frá kl. 13:30-15:45. Skólabílar keyra nemendur heim að skemmtun lokinni.

Sjoppan verður opin og nemendur á unglingastigi selja þar pítsur, sælgæti, svala og gos. Dæmi um verð í sjoppunni;

  • pítsusneið 350 kr.
  • gos 300 kr.
  • svali 150 kr.
  • súkkulaðistykki á bilinu 130-200 kr.
  • lakkrísrúllur 120 kr.
  • jarðaberjasælgæti 100 kr.
  • sleikipinnar 80 kr.

Hægt verður að fara til spákonu, í draugaherbergi og slökunarherbergi. Ljósmyndastöð verður á staðnum og boðið verður upp á andlitsmálningu og hárgreiðslu. Allir nemendur eru hvattir til að mæta í öskudagsbúningum og leyfa hugmyndafluginu að njóta sín.

Öll lið mega syngja á sviðinu í íþróttahúsinu og gaman væri að sjá sem flesta taka í viðburðinum.

Veittar verða viðurkenningar fyrir söng og búninga sem skara framúr.

Að sjálfsögðu er foreldrum velkomið að koma og líta á dýrðina.

Frí verður í skólanum á öskudag og vetrarfrí dagana 2. og 3. mars. Nemendur mæta því næst í skólann mánudaginn 6. mars. Það skal tekið fram að engin frístund verður á sprengi- og öskudag og vetrarfrís dagana tvo.