Í síðasta sveitapósti var auglýsing þar sem við auglýstum eftir garnafgöngum í smíðastofuna. Sveitungar brugðust vel við og heilmikið af garni streymdi til okkar. Þökkum við kærlega fyrir skjót og góð viðbrögð.
Á meðfylgjandi myndum má sjá sýnishorn af þeim snærum sem unnin hafa verið úr garnafgöngunum. Þau eru snúin með aðstoð borvélar sem gerir það að verkum að auðvelt er að vinna misgróf snæri sem passa í þau verkefni sem unnin eru, má t.d. nefna sippubönd, tauma, stiga og dýraskott.